Fréttir

Hvatningarverðlaun dags gegn einelti 2018

Lilja D. Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra veitti Vinaliðaverkefninu hvatningarverðlaun dags gegn einelti 2018 þann 8. nóvember. Guðjón Örn Jóhannsson verkefnastjóri verkefnisins og Selma Barðdal Reynisdóttir tóku við verðlaununum við athöfn sem haldin var í Öldutúnsskóla, Hafnarfirði.